Nærmynd flytur á 3 hæð.
Ég hef flutt vinnustofu mína í glæsilegt húsnæði á 3 hæð á laugavegi 178, sama húsi og ég var í frá árinu 2000 og í sama húsi og ég byrjaði árið 1986 eftir að ég keypti stofuna af Mats
.
Með góðra manna hjálp hef ég flutt gömlu Nærmynd sem Bubbi smíðaði úr eðalviði smíðajárni og úr stáli, 6 metra ljósastæði fór inn um gluggann og allar mublurnar upp á loft , Wc ið sem var byggt á miðju gólfi myndar nú umgjörð um nýja eldhúsið mitt.
Það er ótrúlegt hvað maður á marga vini þegar á reynir og án þess að kalla sérstaklega á nokkurn mann. Þeir birtast bara á rétta augnablikinu og taka til hendinni, hendast upp á loft, setja saman skrifborðin,stóru ljósin í loftið, brautirnar á stúdíóloftið, ásamt því að þrífa sópa og bóna.
Takk Ívar minn fyrir teikninguna sem unnið var eftir og allan burðinn.,Hrafnhildur, Sindri og Smári, Selma og kærastinn hennar hugumprúði, og auðvitað Guðrún mín, Fanney og Halldór sonur minn.
Pólverjarnir á dekkjaverkstæðinu, Kristján og Jarek, sem báru upp stálið. Þá skal nefndur Kári smiður, sem er ekki af þessum heimi með DeWALT skrúfvélina. Útsjónarsemi og smiðshendur, sem eiga fáar sér líkar. Guðjón rafvirki takk. Síðast en ekki síst minn gamli og kæri vinur frá Akureyri, Frissi málari sem er vandvirkastur allra og maður dirfist ekki að bjóða aðstoð, því að að mála er ekki bara að mála. Það veit ég jafn vel og að mynd er ekki bara mynd. Takk Frissi minn fyrir málverkið.
Vinnustofan er aldeilis frábær 6 metra myndatökuveggur í besta gráa stúdíó lit ever og hvíti grunnurinn minn er í loftinu hægra megin Meiningin er að færa ljósin á brautinni þegar ég vil mynda Nærmynd portfólíó á gráum grunni án þess að taka hinn upp.Hægt er að koma fyrir 30 manna hópi auðveldlega. Nú er ekkert að vanbúnaði . Ég hef aldrei haft eins góða aðstöðu og verið í eins góðu formi í vinnunni og þessa dagana.
Ég veit að maður útskrifast ekki sem portrettljósmyndari fyrr en á hinsta degi, og ég veit líka að ég á eftir að taka bestu myndirnar mínar . Nærmynd portfólíó er mitt lífsstarf líf og yndi.
Má ekki bjóða þér Nærmynd portfólíó?
Nýlegt Nærmynd Portfólíó

Egill áður en skeggið fauk
Breki Þeyr Arnarsson fyrsti gesturinn kom á nýju vinnustofuna mína á 3 hæð á laugavegi 178,
sonur Matthíasar og Ölmu Egils, barnabarn vina minna,Olgu Garðars og Arnar Jónssonar.
